Fyrir þá sem ekki hafa lesið hamingjublogg Helga Ómars eða séð einhvern smella þessu hashtaggi #100happydays undir mynd á instagram eða facebook, ættu svo sannarlega að skoða þetta skemmtilega konsept.
100happydays.com er heimasíðan á bak við alla þessa hamingju og mæli ég eindregið með því að skoða hana vel með opnum hug og taka áskoruninni!
Ég skráði mig í gær og ætla að stuðla að hamingjusamara og betra lífi fyrir mig og mína fjölskyldu. Þetta þarf nefnilega ekki að vera flókið, finna einn hlut sem gerir þig hamingjusama/nn á hverjum degi. Hvort sem það eru skórnir þínir, maki, barn, tannburstinn eða sjónvarpið. Hugsið ykkur ef við notuðum aukaorkuna í jákvæðni en ekki neikvæðni og hvað það gæti bætt líf okkar til muna.
Thumbs UP….. þó þumallinn sjáist eitthvað skringilega, eins og aðskotahlutur…
Skrifa Innlegg