Í síðustu viku fór ég í hressilega myndatöku með Ígló&Indí þar sem Íris Dögg ljósmyndari var að taka myndir af sumarlínunni ’15.
Eins og svo oft gerist í útitökum þá er ekki hægt að stóla á veðrið og fengum við já, allhressilegt veður. Rok og rigning eins og hún gerist best hér á Suðurlandinu. Við hinkruðum þó í nokkra klukkutíma á veitingarstaðnum í Bláa Lóninu í von um að það stytti upp sem það gerði sem betur fer (borgaði þar tæpan 3þús kall fyrir salat í plastboxi og svart kaffi, sem er kannski vert að skoða í ljósi umræðna um okur á vinsælum ferðamannastöðum landsins).
Fyrir aðdáendur Ígló&Indí er hægt að finna bæklinginn fyrir sumarið 2015 HÉR =)
Helga og Karítas hressar í rokinu
Skrifa Innlegg