fbpx

Vilt þú læra að krulla á þér hárið?

Hár

Vilt þú læra að krulla og bylgja hárið ?

 Áttu krullujárn en kannt ekkert á það? Langar þig að fá smá liði eða miklar krullur en veist ekkert hvernig á að framkvæma það, eða það tekur þig alltof langan tíma svo þú sleppir því og endar með hárið í sama snúðinum dag eftir dag?

Ég og Baldur Rafn hárgreiðslusnillingur ætlum að bjóða kvenþjóðinni upp á almennilega krullu- og bylgjukennslu miðvikudaginn 17.september  frá 19:30-21:30 í heildsölunni Bpro, Ögurhvarfi 4.

Baldur Rafn verður með góða fræðslu um mikilvægi þess að velja réttu hárvörurnar sem hentar hverjum og einum. Svo mun ég kenna allt frá hversdagskrullum upp í hátíðarkrullur á einfaldan og skilvirkan máta og eru þáttakendur hvattir til að koma með óskir um kennsluefni sem verður einnig farið í.

 Á námskeiðinu er hægt að versla hárvörur frá Label.m og járn frá HH simonsen á sérstöku Trendnet- tilboði –  25% afslætti.

 

Námskeiðið kostar 6000kr og komast einungis 15 konur að til að tryggja góða og persónulega kennslu.

Skráning á námskeiðið og frekari upplýsingar eru í netfanginu theodora.mjoll@gmail.com

………

Fram að námskeiðinu fer fram skemmtilegur instagramleikur þar sem allar konur (og karlar?) eru hvattar til að gera fallegar krullur í hárið á sér og merkja myndina með hashtagginu #trendkrullur 

Vinningshafinn verður svo dreginn út í næstu viku og fær FRÍTT á námskeiðið, krullujárn frá HH simonsen að EIGIN vali og gjafakörfu fulla af hárvörum frá Label.m

Hlakka til að sjá myndirnar ! =)

xxx

Theodóra Mjöll

Fléttu kreisíness

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Aldís

    8. September 2014

    hvernig væri að henda í sniðugt myndband eða eitthvað fyrir svona landsbyggðarpakk? ;)

    • Theodóra Mjöll

      9. September 2014

      Já það er alltaf í bígerð =) Lofa því að það kemur einn daginn þegar það gefst tími!

  2. Hugrún Sigurðardóttir

    8. September 2014

    Vá! Nú væri gott að búa í Reykjavík!

    • Theodóra Mjöll

      9. September 2014

      Jáá ég veit, allt svona er alltaf á höfuðborgarsvæðinu. En það er algjörlega hægt að taka það til umhugsunar að gera þetta út á landi, jafnvel á Akureyri! =) Hvar býrð þú?

  3. Andrea Simonardottir

    3. January 2015

    verður ekki annað námskeið ?