Blaðamaður hjá Fréttatímanum hafði samband við mig fyrr í vikunni og bað um að fá mig í smá viðtal fyrir blaðið. Þetta litla viðtal varð svo alveg óvart að trúnó og sagði ég henni frá öllu lífi mínu og hvernig ég þróaðist út í að vera sú manneskja sem ég er í dag.
Var á smá bömmer eftir viðtalið, að ég hafi nú sagt of mikið, en ég ætla að taka jákvæðnina á þetta og vonast til þess að stelpur sem hafa lent í því sama og ég geti nýtt sér sögu mína og annað hvort leitað sér hjálpar eða fengið þær til að líta öðrum augum á ofbeldið. Notað það til styrktar en ekki til niðurrifs!
Hér má sjá viðtalið í heild sinni
Skrifa Innlegg