Skemmtilega og stelpulega hártrendið, tvær fastar fléttur sitthvorum megin á höfðinu er með svakalega endurkomu mér til mikillar ánægju.
Þetta er eitt af þeim trendum sem sást mikið á tíunda áratugnum og sást Madonna og fleiri söng- og leikkonur bera þær. Þær hafa þó verið mjög vinsælar alla tíð á litlum stelpum og hefur verið einhverskonar staðalímynd sakleysis (að mínu mati). Nú er komið að því að rokka þessar fléttur á ný !
Ég er sjúk í þetta, þægilegt, stelpulegt og pínu pönkað ef rétt er farið að.
Rita Ora tískudrolla sést hér rokka tvær fastar fléttur.
Skrifa Innlegg