fbpx

theodoramjoll.com loksins komin upp!

Loksins loksins er heimasíðan mín að koma til. Ég keypti lénið theodoramjoll.com árið 2012 og er ég búin að vera á leiðinni að setja upp heimasíðu síðan þá. Betra seint en aldrei ekki satt? Heimasíðan er þó alls ekki tilbúin og á ég eftir að setja inn helling af efni, en það kemur hægt og rólega með tímanum.

Síðan mín er í raun einskonar ferilskrá sem er mjög nauðsynleg í þeim bransa sem ég er að vinna í, eða að reyna að vinna í réttara sagt. Það er ekki auðvelt að vera freelance hárgreiðslukona á Íslandi þar sem förðunarfræðingar fá flesta hárvinnu þegar kemur að tökum og verkefnum, en það er annað mál.

Síðuna gerði ég sjálf og notaðist við forritið Squarespace sem ég mæli þúsund prósent með! Hún er mjög auðveld í notkun og það þarf ekki atvinnu forritara til að setja hana upp, svo þið sem vinnið í þessum bransa og eigið eftir að setja upp heimasíðuna- do it!! =)

Endilega kíkið á síðuna mína og segið mér hvað ykkur finnst, hvað má betur fara, hvað er óljóst og annað. Mér þætti gríðarlega vænt um það  =)

xxx

Theodóra Mjöll

trendet-eg-a-hlid

P.s. Er nýja myndin af mér ekki fín??? Yndislega Íris Dögg ljósmyndari kann sko að gera þetta =)

Og vinningshafi #trendkrullur er......

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Begga Veigars

    24. September 2014

    Fallegust! :*

  2. Lára

    24. September 2014

    Mjög flott síða, hreinleg og einföld :)

  3. Hrund

    1. October 2014

    Hæ. Mætti ég spyrja hvaðan kjóllinn er sem þú ert í á myndinni hér fyrir ofan? :)