Við hjá Trendnetinu verðum með ótrúlega spennandi og skemmtilega tískuráðgjöf í Smáralindinni á morgun (laugardag) á milli 15:00-17:00 fyrir framan epli.is.
Ég verð með ráðgjöf í sambandi við hár og allt sem við kemur hári, og ætla ég að vera með nokkur vel valin járn frá HH-simonsen fyrir alla að prófa og svo einnig til sölu fyrir þá sem vilja tríta sig aðeins :)
Erna Hrund verður með ráðgjöf í förðun og allt sem við kemur henni og Þórhildur verður með ráðgjöf í fatainnkaupum og alls sem tengist fataskápnum.
Ég að sjálfsögðu hvet alla til að mæta og heilsa upp á okkur svo við stöndum ekki þarna eins og strandaglópar ;)
Munið svo að merkja ykkar fasjónmóment með #trendsmaralind á instagram, því það eru SVAÐAlegir vinningar í boði!! Einn vinningshafi dreginn út á hverjum degi þangað til á mánudaginn en þá endar leikurinn.
Ef þið hafið ekki tök á því að mæta í Smáralind um helgina en viljið eeeendilega fá svör við einhverjum spurningum varðandi hár, förðun eða tísku, smellið þá á borðann hér að neðan og við svörum eftir bestu getu :)
xxxx
Skrifa Innlegg