fbpx

Sumarfrí í Sveitasælu

Við familían (Ég, Emil, Ólíver, Koli og Tinni) fórum í stutt og ótrúlega gott sumarfrí til Akureyrar í síðustu viku. Komum í bæinn seint í gærkvöldi þar sem við þurftum bæði að mæta til vinnu í dag. En vá, það er svo gott að komast út úr bænum. Allar orkustöðvar líkamans eru fullhlaðnar og jákvæðnin í hámarki. Við nutum sveitasælunnar, sundferða, grillkjöts og félagsskaps hvors annars. Hittum bræður mína tvo sem búa á Akureyri  ásamt fjölskyldum sínum. Enduðum ferðina í gær með því að stoppa á Geitafelli sem er sveitaóðal í eigu frænda míns og konu hans, en það voru hvorki meira né minna en 19 manns í mat með okkur. Alvöru sveitastemning. Yndislegt.

Ó hvað ég væri til í að eiga eitt stykki hús á Akureyri og búa þar á sumrin. Framtíðarplan!!!

Ólíver smakkaði sítrónu í fyrsta skiptið. Við hlógum okkur máttlaus!

Ómar bróðir í uppáhaldi hjá hundunum í sveitinni.

Emil, Tinni og Arndís (kærasta Ómars bróðir) í sólbaði á sveitabæ mömmu og pabba í Eyjarfjarðarsveit.

Ég og Ómar bróðir að reyna að fá almennilega mynd af okkur saman. Gátum ekki verið eðlileg á sama tíma…

Tinni uppgefinn eftir hlaup og gelt dagsins. Fann sér bangsa-hund í svipaðri stærð og hann sjálfur til að kúra upp við.

Hlaðborðið á Geitafelli. Grillað lambakjöt og meððí.

 

17.júní í Hafnarfirði

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

3 Skilaboð

  1. Anonymous

    24. June 2013

    flottar myndir, gaman hjá ykkur

  2. Anonymous

    24. June 2013

    ótrúlega skemmtilegt

  3. Halla

    24. June 2013

    Sumrfríið er skemmtilegt…