fbpx

ME & MY BENTLEY

Eitt af mínu uppáhalds á instagram er  @meandmybentle_com

Fyrirtækið býður upp á margs konar þjónustu en ég geri mér ekki fullkomlega grein fyrir því nákvæmlega hvað það er. Heimasíðan meandmybentley.com er mjög óskýr hvað varðar stefnu fyrirtækisins og hvað þeir í raun gera, en það er annað mál.

Ástæðan fyrir því að ég er að deila þessu með ykkur er sú að þeir (eða þær?) deila ótrúlega fallegum minimalískum myndum sem harmorera svo vel saman og eru algjört augnakonfekt. Þemað eru hvítar og gráleitar myndir þar sem  falleg/klassísk hönnun og einstök næmni fyrir smáatriðum í myndunum er ríkjandi. Myndablandan er fullkomin þar sem arkitektúr, innanhússhönnun, vöruhönnun, grafísk hönnun, bílar, tíska og fylgihlutir blandast saman á notalegan hátt sem gaman er að skoða.

 

Fyrstu Frozen myndirnar

Skrifa Innlegg