fbpx

Máttur grænkálsins

Matur

Grænkál (Kale á ensku) flokkast sem ofurfæða því það er eitt næringarríkasta grænmeti sem fyrirfinnst.
Það inniheldur m.a. A, C og E vítamín, járn, kalk, magnesíum og fólínsýru og hefur góð áhrif á ristil, þarma og lifur.
Grænkál er kjörið í ávaxtaþeyting, súpur, salöt, pottrétti, gufusoðið eða léttsteikt á pönnu með öðru grænmeti.

Grænkál er bragðgott, einkum ef það hefur náð að frjósa, því frostið örvar niðurbrot á mjölva þannig að það verður sætara. Í mörgum löndum er grænkál vinsælt grænmeti og er selt í álíka magni og höfuðkál.

Innihald í 100 g
Vatn 85 g
Orkurík efnasambönd
Prótein 5,0 g
Trefjar 4,3 g
Kolvetni 7,3 g
Fita 0,6 g
kj 235
kcal 56
Steinefni
Járn 2,3 mg
Kalk 200 mg
Vítamín
A Ret. ein 850 µg
B1 0.15 mg
B2 0.29 mg
Niacin 2,8 mg
C (askorbínsýra) 150 mg

 

Einnig eru rannsóknir sem sýna að grænkálið getur komið í veg fyrir krabbamein og er ein auðveldasta-heilbrigða leiðin til að léttast!

…………

Ég finn ótrúlegan mun eftir að ég bætti grænkáli í mitt daglega mataræði. Meltingin er betri og ég kúka miklu betur (haha sorrry, en þetta er satt!). Ég finn að ég er orkumeiri og tilbúnari í daginn! Einnig er mælt með fyrir óléttar konur að borða grænkál þegar hægðirnar eru að valda þeim vandræðum, sem er mjög algengt vandamál.

Það sem ég hef verið að gera er að saxa grænkál mjög smátt og set það í poka og inn í frysti. Svo bæti ég því út í þeytinginn minn á morgnana eða um miðjan daginn. Stundum á kvöldin!

………

Uppskrift af FULLKOMNUM grænkálsþeyting:

Banani og vatn

Chia fræ

Frosið mangó

Tvær lúkur af frosnu grænkáli

…….

zVhT3c8uXE1VvFFvJm2l32Fn

Einnig er uppskrift að grænkálssnakki búið að fara eins og eldur um sinu á netinu síðustu vikur…á eftir að prófa það!

xxxx

Theodóra Mjöll

 

Heimildir: www.islenskt.is, lifandimarkadur.is, www.whfoods.com

#TRENDKRULLUR

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

    • Theodóra Mjöll

      15. September 2014

      Ómægat hvað þetta er giiiirnilegt!! Ég ætla að prófa þetta við fyrsta tækifæri =)

  1. Sara

    15. September 2014

    Elska grænkál og alveg satt með meltinguna haha ;)

    • Theodóra Mjöll

      15. September 2014

      Hahah þetta er sko rosalegt! =)

    • Theodóra Mjöll

      15. September 2014

      Hólí mólí hvað grænkálspestó hljómar vel!!!

  2. Bergdís Inga

    15. September 2014

    Amma byrjaði að rækta grænkál úti í garð hjá sér fyrir nokkrum árum og fór að setja þetta í þeyting / búst sem hún fær sér á hverjum morgni. Við það að bæta grænkálið út í, þá fór hárið á henni að dökna í rótina. Hún var alveg hætt að lita á sér hárið og var komin með ljósgrátt / hvítt hár. Nú er hún hinsvegar komin með dökka rót.