fbpx

Heima hjá mér

Ég ætla að deila með ykkur tveimur myndum úr stofunni heima. Myndahillan er nýkomin upp og er ég búin að skipta reglulega um myndir til að sjá hvað passar best og annað. Ég er enn ekki föst á því hvort ég vilji hafa myndirnar svona upp settar, en mun prófa mig áfram þangað til ég verð sátt.

LOVE stafirnir er keyptir í Tiger. Vasinn er úr ILVA og myndirnar eru af Ólíver, okkur hjónunum á brúðkaupsdaginn, ugla og fjöður sem ég gerði sjálf og handprentaði í kúrsi í skólanum, eldgömul mynd af Íslandi sem ég man ekki hvaðan kom, en ef þið rýnið vel í myndina sést hversu gömul myndin er vegna brenglaðra stærðarhlutfalla landsins. Svo er ein mynd með prentinu “So fucking peaceful…” sem ég keypti í Hagkaupum. Myndin hefur farið fyrir brjóstið á nokkrum fjölskyldumeðlimum (nefni engan á nafn mamma) en mér finnst þetta afvæmna myndavegginn svolítið. Sem er gott. Get ekki of væmið.

Seinni myndin sjáið þið fílinn minn fagra sem ég keypti í Hrím, plöntu sem amma mín gaf mér rétt áður en hún dó svo plantan hefur mikið tilfinningalegt gildi fyrir mig. Það er í raun alveg ótrúlegt að plantan skuli vera enn á lífi því ég kann ekki að hugsa um blóm né plöntur. Um leið og þær koma inn á mitt heimili virðast þær gefa upp öndina. En þessi hefur svoleiðis haldið lífi þrátt fyrir vatnsleysi mánuðum saman og þurra mold.

Græni vasinn er úr Ilva og svo sjáiði ef vel er athugað, fiðrildi og bífukollur frá Guðrúnu Lilju í Bility. Stóra fiðrildið gaf hún mér þegar ég greiddi stelpunni hennar á fermingardaginn og held ég mikið upp á það. Einn af mínum uppáhalds.

 

 

Húsdýragarðurinn

Skrifa Innlegg