fbpx

Eitt af verkefnum sumarsins

Hár

Ég og Steinunn Ósk hárskvísa með meiru fórum í aldeilis sérkennilega en skemmtilega vinnuferð í sumar.

Við vorum sendar á suðurland í 4 daga þar sem við sáum um að gera hárið á keppendum Million Dollar Shooting Star. Eða dramadrottningunum og dívunum :) Það er mjög fyndið að vinna við raunveruleikasjónvarp því allar stelpurnar voru með svo miklar grímur til að koma sem best út í sjónvarpinu að það var á tímum vandræðalegt. En þrátt fyrir dramantíkina sem lá yfir þessum dögum var þetta mjög skemmtilegt og við fengum að sjá flugvélina á Sólheimasandi sprengda upp af sprengjusérfræðingi, fallega íslenska hesta og stórbrotna náttúru og Geysi í allri sinni dýrð.

Eins og flestir kannski kannast við þá er fyrrverandi hans Leonardo DiCaprio hún Bar Rafaeli, kynnir þáttanna. Það sem einkenndi hana á þessum dögum var að pabbi hennar fylgdi henni hvert fótmál…eins og lífvörður. Ég gúgglaði hann svo þegar ég kom heim úr ferðinni og þá er hann víst ex-con…..sjúklega harður gaur, haha…:)

Vísir.is fjallaði um þáttinn fyrr í vikunni og stal ég nokkrum myndum þaðan til að sýna ykkur…..

 

 

Sigurvegarar trendhárs

Skrifa Innlegg