fbpx

Dröfn&Ómar

BrúðkaupHár

Dröfn Sæmundsdóttir vöruhönnuður með meiru giftist sínum heittelskaða Ómari á laugardaginn síðastliðinn með pompi og prakt.

Ég fékk smávægilegt hlutverk á brúðkaupsdaginn, og það var að sjálfsögðu að greiða brúðinni. Dröfn er með hnausþykkt, ólitað hár sem auðvelt er að móta, svo það mætti segja að ég hafi dottið þar í lukkupottinn hvað varðar útkomuna sem við báðar vorum einstaklega ánægðar með.

Myndirnar tók Emilía Ottesen áhugaljósmyndari og finnast mér myndirnar óneitanlega fallegar.

Sjáið hvað Dröfn geislar af fegurð (og Ómar líka, en hann er aukaatriði í þessari færslu minni haha, fyrirgefðu)!

unnamed-1 unnamed-2 unnamed-3 unnamed-4 unnamed

 

Love is in the air...

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Eva Dís

    23. July 2014

    Þau eru svo flott bæði tvö, þetta var æðislegt brúðkaup og Dröfn alveg gullfalleg og Ómar líka enda er hann náfrændi minn.,,,heheh

  2. Ásdís

    23. July 2014

    Ó svo fallegt!

  3. eva

    23. July 2014

    þetta er einn fallegasti náttúrulegi hárlitur sem að ég hef séð! :)

  4. Erla Sigurðar.

    24. July 2014

    Fallegt par og flottar myndir, hjartanlegar hamingjuóskir.

  5. Inga Rós

    25. July 2014

    Ólitað hár?? Ertu ekki að djóka? Vá ekkert smá gordjöss