Dröfn Sæmundsdóttir vöruhönnuður með meiru giftist sínum heittelskaða Ómari á laugardaginn síðastliðinn með pompi og prakt.
Ég fékk smávægilegt hlutverk á brúðkaupsdaginn, og það var að sjálfsögðu að greiða brúðinni. Dröfn er með hnausþykkt, ólitað hár sem auðvelt er að móta, svo það mætti segja að ég hafi dottið þar í lukkupottinn hvað varðar útkomuna sem við báðar vorum einstaklega ánægðar með.
Myndirnar tók Emilía Ottesen áhugaljósmyndari og finnast mér myndirnar óneitanlega fallegar.
Sjáið hvað Dröfn geislar af fegurð (og Ómar líka, en hann er aukaatriði í þessari færslu minni haha, fyrirgefðu)!
Skrifa Innlegg