fbpx

Brúðkaupsgreiðsla Dóru

Brúðkaup

Í haust fékk ég það tækifæri að greiða Dóru Sif Jörgensdóttur á brúðkaupsdaginn.

Ég varð himinlifandi þegar hún tilkynnti mér að ég mætti gera fallega og hreina uppgreiðslu, en það er ekki algengt skal ég segja ykkur að brúðir vilja fá alvöru uppgreiðslu.

Mér fannst greiðslan heppnast einstaklega vel, en þar sem hún er með frekar fíngert hár, þá þurftum við að bæta gervihári í formið neðst við hnakkabein til að fá fallegri heild á greiðsluna.

Er hún Dóra ekki með fallegri brúðum sem þið hafið séð?

Ég ræð ekki við mig, brúðkaup eru eitt það fallegasta sem til er í lífinu og ég verð alltaf jafn væmin þegar ég sé fallegar brúðkaupsmyndir. Það skín af þeim hamingjan á myndunum =)

dorahar

IMG_7602

IMG_7707

IMG_7788

IMG_7835

IMG_7906

Óvænt heimsókn

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. LV

    1. October 2013

    Æðislega falleg greiðsla og brúðurin líka :)

    -LV

  2. Sólrún

    1. October 2013

    Love it! Og brúðurin er guðdómlega falleg

  3. Karen

    1. October 2013

    Ekkert smá flott!
    Veistu hver tók myndirnar?

  4. Dóra Sif

    1. October 2013

    Takk enn og aftur fyrir að gera mig svona fína elsku Theodóra! :)

    Karen, ljósmyndarinn heitir Lalli Sig. Getur séð upplýsingar um hann inná:http://larus.is/
    Mæli alveg 100% með honum! :)
    Annars takk fyrir hrósið :)