Fyrir nokkrum árum síðan var ég mikið að prófa mig áfram með pop-up hluti og bækur. Finnst þessi hugmyndafræði sjúklega heillandi. Það þarf mikla þolinmæði, útsjónarsemi og hugmyndaflug til að ná góðum tökum á þessu og ég tala nú ekki um tíma!
Þessa bók rakst ég á þegar ég var sem mest heilluð. Það er alveg sama hversu oft ég horfi á þetta myndband, mér finnst þessi bók alltaf jafn mikil snilld.
Ég þrái að eignast hana.
ABC 3D eftir Marion Bataille í jólapakkann minn =)
Skrifa Innlegg