fbpx

17.júní í Hafnarfirði

Í tilefni 17.júní ákváðum við hjónin í Hlíðunum að halda smávegis grillpartý í hádeginu fyrir fjölskylduna. Planið var að labba síðan niður í miðbæ Reykjavíkur og njóta samverunnar og dagskránnar sem þar var í boði. Við frekari umræðu var ákveðið að fara í Hafnarfjörð í staðin og sé ég ekki eftir því. Yndisleg hátið þar sem Austurgata, gatan fyrir ofan göngugötuna, var miðpunkturinn og básar með sykurpúðum, notuðum og nýjum fötum, vöfflum og alls kyns gúmmelaði var í boði. Ekta smábæjar fílingur.

Hitti líka tvær Trendstöllur, þær Svönu Lovísu og Hildi sem var ekki slæmt.

Ég er samt ekki sátt við veðrið sem ákvað að vera ekkert svo sérstakt í dag, en skemmti mér samt sem áður konunglega.

Gleðilegan 17 júní :)

Heima hjá mér

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Halla

    18. June 2013

    Rauda húsid alltaf fallegt…..