Ég var í myndatöku út á landi í gær og voru staðsetningarnar ekki af verri endanum, en það var myndað á Reynisfjöru og svo auðvitað á stóra túrista aðdráttaraflinu: flugvélin á Sólheimasandi.
Fyrir töku var ég búin að ákveða að taka nokkrar ,,behind the scenes ” myndir til þess að deila með ykkur, en satt best að segja var ekkert svaka mikill tími fyrir svoleiðis, og svo var mikið rush á milli staða vegna veðurs. Þrátt fyrir það tókst mér að taka nokkrar myndir – sem eru þó aðalega af landslaginu, en það skiptir litlu þar sem það er svo fallegt.
Hlakka svo til að sýna ykkur myndirnar sem koma út úr tökunni sjálfri, þær eru mjööööög dramatískar en cool!
xx
Melkorka
Skrifa Innlegg