Vinkona mín Rúbína sagði mér eina mega sniðuga og fljótlega uppskrift af hollum Sorbet.
Sorbetinn er hentugur fyrir þá sem vilja taka til í mataræðinu en vilja samt sem áður geta gripið í eitthvað sætt yfir sjónvarpinu á kvöldin.
Svo er hann góður og ferskur svo hann er tilvalinn til kælingar í sumar, sem verður vonandi stútfullt af sól og hita!
Uppskrift fyrir 4:
180gr Grískt jógurt
3 Bollar frosinn Mango
Dass af kókosmjólk
1tsk hunang (valfrjálst)
Allt sett í blandara, síðan sett í box (gamalt ísbox er sniðugt) stráð kókos yfir og að lokum sett í frystinn yfir nótt.
Gott að bera fram með ávöxtum og súkkúlaðisósu úr 70% súkkulaði, eða bara hafa ísinn einn og sér :)
Þangað til næst,
XX
Melkorka
Skrifa Innlegg