fbpx

Túperingarbursti

Jæja, þetta er eitthvað sem ég ætti auðvitað að vera löngu búin að skrifa um, en túperingarbursti er algjört möst stelpur!

Burstinn býr yfir þeim eiginleika að hægt er að gera hárið mjög stórt með lítilli fyrirhöfn. Hann býr til góða og endingarmikla túperingu, án þess þó að það verði of flókið. Ástæðan fyrir því að burstinn nær svo góðri túperingu er sú að það eru stutt og síð hár/angar í burstanum sem gerir það að verkum að þegar hárið er túperað, fara mun fleiri hár niður með burstanum en ef notuð er venjuleg pinnagreiða.

Af því að burstinn hefur mjúk hár, er hægt að túpera það mjög stórt og mikið og greiða svo yfir túperinguna með því að halla burstanum í ca 45°. Þannig færðu fallegt og slétt yfirborð en túperingin helst vel undir. Því meira sem þú greiðir yfir, því sléttari verður áferðin.

Einn túperingarbursti á hverja skvísu! Þið verðið ekki fyrir vonbrigðum!

Hægt er að fá túperingarbursta á nokkrum hárgreiðslustofum eins og Rauðhettu og Úlfinu, Slippnum og Kompaníinu.

 

Ron Mueck

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. S

    25. February 2013

    Snilld! Veistu hvað hann kostar sirka?

    • Theodóra Mjöll

      25. February 2013

      Nei ég veit það ekki, en hef heyrt að hann sé á um 3 þúsund. Ætti allavegana ekki að vera dýrari en það!

  2. BerglindV

    26. February 2013

    Aljgör snilld, must have!!

  3. Rebekka Líf

    26. February 2013

    Værirðu nokkuð til í að fá þér svona bloglovin reikning svo maður fái alla þessa snilld beint í æð?

    • Theodóra Mjöll

      10. March 2013

      Já…ég kann ekkert á bloglovin….
      En ég skal tjékka á þessu =)

  4. Rakel

    9. March 2013

    Hæhæ. Hvað er enska orðið yfir svona túberingarbursta?

    Kveðja,
    Rakel

    • Theodóra Mjöll

      10. March 2013

      Hæ, í flestum tilfellum er það “back comb” en svo er það líka “teasing brush”…. vona að þetta hjálpi eitthvað :)