fbpx

Sýnikennslur fyrir verðandi árshátíðir

Þar sem marsmánuður er mikill árshátíðarmánuður ætla ég að hafa nokkrar sýninkennslur á árshátíðargreiðslum.  9.mars, eða næstkomandi laugardagur, er stór árshátíðardagur og langar mig að vera með að minnsta kosti 3 sýnikennslur fyrir þann dag.

Spurningin er, hvað langar ykkur að læra? Hvaða greiðslur finnast ykkur dásamlegar en getið ómögulega komist að hvernig á að framkvæma?

Sendið á mig annaðhvort hér fyrir neðan linka að greiðslum, eða í tölvupóstinn theodoramjoll@trendnet.is og ég skal sjá hvað ég get gert :)

Hvað finnst ykkur um þessa hér?

Í gær

Skrifa Innlegg

10 Skilaboð

  1. Berglind V

    3. March 2013

    Mér finnst hún rosalega flott!!

  2. Klara

    4. March 2013

    Sammála Emblu… líka sú sem er á fyrstu myndinni – klassískar og elegant greiðslur :)

  3. þórdís

    5. March 2013

    mér finnst þessi geggjuð! væri mjög mikið til í að læra svona “messy updo”, finnst það svo árshátíðarlegt! :)

  4. Kristín

    5. March 2013

    Gleymdi aðal…. þessi sem Reese Witherspoon var með á Óskarnum…. þessir stóru liðir / bylgjur. Hvernig gerir maður svoleiðis ?

  5. Benedikta

    5. March 2013

    Ég er að fara á árshátíð þar sem er 20s og 30s þema – Mátt alveg koma með dæmi um greiðslur frá þeim tíma :)

    Ps. Elska bloggið þitt

  6. Theodóra Mjöll

    5. March 2013

    Takk fyrir þetta stelpur! Ég tek þetta sko sannarlega til greina. Ætla að setja aðra sýnikennslu inn á morgun, á enn eftir að ákveða mig en mun pottþétt taka eitthvað af þessum hugmyndum ykkar! ;)