Ég var í svo skemmtilegri myndatöku í dag með Nude Magazine þar sem ég fékk að gera hár sem er eitt af mínum uppáhalds trendum sumarsins. Lágt tagl með tvisti.
Hægt er að útfæra taglið á marga vegu svo sem skipt í miðju, skipt til hliðar, helmingurinn wet look, hárskraut í teygju, snúningur á taglinu neðst og þar fram eftir götunum.
Hér eru nokkrar myndir af lágu tagli sem allir verða að prófa með hækkandi sól =)
Skrifa Innlegg