Eftir miklar vangaveltur og instagram skoðun er komin niðurstaða í Trendhár leikinn okkar…
duddururumm……
Í fyrsta sæti er Áslaug Arna fyrir að vera með fallegasta hár á jörðinni, fyrir stórkostlegar krullur og líka fyrir að vera fallegur persónuleiki :)
Í öðru sæti er Gula rósin fyrir flotta uppgreiðslu, en ég veit ekki hvort ég kann að gera fimmfalda fasta fléttu með snúð…..úff…vel gert! :)
Í því þriðja er Una Unnars fyrir einstaklega fallegar og mjúkar krullu! Ekkert smá heit pía! :)
Í fjórða sæti er Beggý Heiða með fasta fiskifléttu (að ég haldi) og flotta útfærslu á henni…..ótrúlega falleg greiðsla!
Verðlaunin fyrir fyrsta sæti eru: Sebastian Trillance sjampó og næring, Microweb Fiber frá Sebastian, SP-hárolía, pinnagreiða, hárbursti og bókin HÁRIÐ!!!
Verðlaun fyrir 2-4 sæti er: SP-hárolía!!
Vinningshafar geta nálgast verðlaunin í Halldóri Jónssyni heildsölunni í Skútuvogi á morgun :)
Takk kærlega fyrir frábæra þáttöku !!!
xxx
Theodóra Mjöll
Skrifa Innlegg