fbpx

Rauðhettu snilld

Ég skemmti mér svo ótrúlega vel á árshátíð Rauðhettu í gær, en kvöldið byrjaði á Slippbarnum þar sem við sátum og borðuðum dýrindis mat í tvo tíma.

Eftir æðislega máltíð var ferðinni heitið upp á stofu þar sem við sátum og spjölluðum úr okkur allt vit og dilluðum rassinum við lélega danstónlist þess á milli.

Snilldar kvöld með snilldar fólki! Mér þykir auðvitað alltof vænt um þetta fólk enda er ég búin að vinna með nokkrum þarna í næstum 10 ár!! Þetta er “hin” fjölskyldan mín og gæti aldrei hugsað mér að hætta…….enda skemmtilegasti vinnustaður á jarðríki!

Árshátíðarhár

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Hafdís Ástþórs

    2. March 2013

    Ohhh sakna ykkar svo… Það var sov gaman að vina á svona fjölmennri stofu!!