Ég er komin með svo mikið ógeð á fötunum mínum að það jaðrar við geðbilun. Ég er nefnilega ein af þeim sem kaupi mér mjög mjög sjaldan föt. Ég vel þau vel og spái mikið í efninu og saumum. Vil helst ekki vera í gerviefnum en “pleather” er þó í uppháhaldi. Ég er rosalega sérstök þegar kemur að sniði og litum OG það leiðinlegasta sem ég geri í lífinu er að fara í fatabúðir að máta föt.
Ekki misskilja, ég fylgist mjög vel með straumum og tísku, en ég vil frekar skoða það á netinu en gramsa í fatabúðum.
Hér eru nokkur átfitt sem ég væri mjög svo til í og mun nota sem innblástur fyrir næstu fatainnkaup.
Skrifa Innlegg