Ég hef mjög gaman og mikinn áhuga á ljósmyndun. Vinn mikið með ljósmyndurum og finnst alltaf gaman að sjá hvernig þeir vinna og hversu ólíkir þeir eru. Ég var að vafra á pinterest í leit að smá innblæstri fyrir komandi verkefni, en það er eitthvað sem ég geri alltaf þegar mig vantar innblástur- pinterest! Er samt enginn svakalegur “pinnari”, skoða bara rosalega mikið og vista myndirnar í tölvuna en ekki á pinterest síðunni sjálfri….
Datt inn á, alveg óvart, að skoða fjölskyldumyndir. Eitt að markmiðum 2014 var einmitt að vera duglegri að taka fjölskyldumyndir og eru þessar hérna fyrir neðan mér mikill innblástur. Ekki of uppstillt, innilegar myndir sem segja okkur stutta sögu….
Skrifa Innlegg