Ég er búin að bíða í mánuð með að segja frá nýju hárvörumerki sem ég var að prófa. En það heitir Nioxin og er amerískt hárvörumerki sem er sérhæfir sig í hárþynningu og lækningu þess.
Þegar þú kaupir Nioxin í fyrsta skiptið, er mælt með að kaupa “kit” sem inniheldur eins mánaðar skammt af sjampói, næringu og hárfroðu.
Til eru 6 mismunandi meðferðir frá Nioxin sem henta mismunandi gerðum hárs. Vörurnar eru einungis seldar á hárgreiðslustofum þar sem hárgreiðslufólk aðstoðar hvern og einn við valið á vörunum.
Vísindin:
- Sjampóið fjarlægir húðfituna úr hársekknum, fitusýrur ofl sem gefur hárinu meira svigrúm til að vaxa.
- Næringin veitir styrk og kemur jafnvægi á rakastig.
- Hárfroðan inniheldur andoxunarefni og jurtir sem fríska upp á hársvörðinn.
Þessar þrjár grunnvörur Nioxin eru mjög góðar til að byrja með og sjá hvernig hárið tekur við. En mun fleiri vörur eru frá merkinu sem hjálpa enn frekar hárinu til að vaxa og koma sterkara upp úr hársekkinum.
Nú er ég búin að nota grunnvörurnar í mánuð og ég sé mun á hárinu mínu. Ég missti nánast allt hárið af mér við brjóstagjöf og þurfti að klippa á mig topp því fremri hluti hársins, hárlínan, fór nánast öll af.
Þegar ég byrjaði að nota Nioxin var ég enn með mikið hárlos og fann fyrir að viku eftir að ég byrjaði að nota vörurnar, minnkaði hárlosið til muna (hvort sem það hafi verið Nioxin eða hormónar er erfitt að segja um) og nú mánuði seinna er hárlosið nánast hætt.
Þau hár sem eru að vaxa aftur eru eins og brúskur upp úr höfðinu á mér, þykk og jafnsíð sem segja mér að það er greinilegt að Nioxin hafi eitthvað með hárþykkinguna mína að gera.
Ég mæli hiklaust með því að allir sem hafa mikið hárlos, eru með þunnt hár eða stanslaus lítil hár í hárlínunni sem virðast aldrei vaxa, prófi Nioxin.
Mánaðar”kittið” kostar einungis 4900,-kr á Rauðhettu og Úlfinum.
Skrifa Innlegg