Skemmtilegt að sjá hvað marmaratrendið sem ríkir nú yfir hefur teygt anga sína víða. Ekki nóg með að það sé “must have” að eiga amk einn hlut úr marmara á heimilinu, hvort sem það er einfaldlega upp á puntið eða þjóni tilgangi, hafa einnig marmaraprint sést á flíkum og á nöglunum. Ég er stórhrifin af þessu trendi og finnst það ekki síðra á nöglunum en á heimilinu.
Guð einn má þó vita hvernig þetta er gert…..!?
Skrifa Innlegg