Vegna mikilla eftirspurna hef ég ákveðið að halda annað krullu- og greiðslunámskeið. =)
Þar sem styttist í árshátíðir og jólaboðin (úff) þá gæti ekki verið betri tími til að læra almennilega á krullujárnið og sléttujárnið eða að henda í auðvelda og fallega greiðslu. Einnig förum við yfir mikilvægi þess að velja réttu hárvörurnar fyrir hvern og einn.
Námskeiðið verður á Rauðhettu&Úlfinum miðvikudaginn 22.október frá 19:30-21:30.
Á námskeiðinu er hægt að versla hárvörur frá Label.m og járn frá HH simonsen á 15% afslætti.
Námskeiðið kostar 6500 kr og er mjög takmarkaður fjöldi sem kemst að til að tryggja góða og persónulega kennslu.
Skráning á námskeiðið og frekari upplýsingar eru í netfanginu theodora.mjoll@gmail.com
Þetta verður svo gaman!!! =)
………..
ATH!!! Námskeiðið varð fullbókað á innan við sólahring svo ég ákvað að halda annað eins námskeið daginn eftir, fimmtudaginn 23.október svo allir sem vilja komast að! Það er enn laust á það námskeið svo endilega ef þið hafið áhuga, sendið mér tölvupóst. =)
……….
Skrifa Innlegg