Ég átti svo stórkostlegt kvöld í gærkveldi að ég man ekki eftir öðru eins!
Emil maðurinn minn átti afmæli og í tilefni þess bauð ég honum út að borða á Grillmarkaðinum. Ég var búin að borga áður en við komum og hann vissi ekkert hvað hann var að fá að borða sem gerði kvöldið ennþá skemmtilegra. Jólamatseðillin er einn sá albesti sem ég hef séð og smakkað og það er ennþá partý hjá bragðlaukunum mínum síðan í gær.
Þjónustan þar er frábær, andrúmsloftið mjúkt og notalegt á þess að vera svæfandi og maturinn góður bæði fyrir augað og bragðlaukana….
Skrifa Innlegg