Ég segi með hnút í maganum og gríðarlegu stolti að fyrsti þáttur Lífsstíls verður sýndur í kvöld kl 19:35 á Stöð 3.
Það allra besta við það er að þátturinn er, og verður alltaf sýndur í opinni dagskrá.
Þetta er byrjunin á nýju og skemmtilegu ævintýri sem ég vona að þið njótið með mér =)
Gaman að segja frá því að ég fór í stutt og skemmtilegt viðtal á fm957 í morgun og í kjölfarið kom flott grein inn á vísi.is um þáttinn sem þið getið séð HÉR. (nenniði samt ekki að dæma mig af myndinni af mér neðst í greininni, hún er alveg hriiikaleg haha…)
Skrifa Innlegg