´Eg á í alvarlegu ástarsambandi við Air Max skóna mína. Þeir hafa ekki farið af fótum mínum síðan þeir urðu mínir, nema í nótt og í ræktinni í morgun.
Gaman að segja frá því að ég get ekki labbað. Bókstaflega. Byrjaði í einkaþjálfun í World Class hjá Heiðu Óla fitness píu á mánudaginn, og hún er ekki að fara neitt varlega með mig. Meira um það síðar =)
Fegurð og þægindi. Besta kombóið!
Fór í rönken í morgun og var þetta niðurstaðan. Sneakerhead syndrome. Á alvarlegu stigi!
Langar í svarta næst…..og líta svona vel út í þeim (sjá mynd fyrir neðan)
Skrifa Innlegg