Já það var alveg óvart.
Síðasta laugardag var ég að gera hárið á sjálfstæðismönnum fínt fyrir kosningarherferðina þeirra, en myndatakan var í gamla Stýrimannaskólanum og kom einstaklega vel út. Á sama tíma var Gísli Marteinn að taka viðtöl við ungt og aldrað fólk á efri hæðinni, og vantaði einn viðmælanda uppá. Stelpu um 25 ára aldur. Var þetta ekki flóknara en það en að ég var beðin um að skjótast til og svara nokkrum laufléttum spurningum Gísla. Ég bjóst auðvitað engan veginn við að eitthvað af því sem ég hafði að segja yrði sýnt, en greinilega stóð ég mig aðeins betur en ég hélt ;)
Ég og Emil erum búin að hlægja mikið að því að ég skuli vera í kosningarherferð xD þar sem ég hef aldrei gefið mig út fyrir að vera neitt sérstaklega mikið inn í stjórnmálum :) En svona getur lífið komið skemmtilega á óvart.
Skrifa Innlegg