Við hjónin fórum á jólatónleika Baggalúts á föstudagskvöldið og skemmtum okkur konunglega. Mig langaði að sýna ykkur lúkkið mitt frá kvöldinu en ég skellti í eina ofurfljóta förðun með nýjum Pressed Pigments augnskugga sem kom heim með mér úr smá snyrtivöruleiðangri um helgina…
Þetta eru bara fjórar vörur sem ég set á augun. Ég byrja á því að grunna augnlokin með köldum brúnum kremaugnskugga, Color Tattoo í litnum Permanent Taupe. Yfir hann setti ég svo Pressed Pigments augnskugga í litnum Deeply Dashing. Ég set báða augnskuggana yfir allt augnlokið og meðfram neðri augnhárunum. Svo setti ég svartan eyeliner í vatnslínuna og maskara á augnhárin og voila :)
Ég er farin að eyða miklu meiri tíma í það en áður að dunda mér að gera húðina fullkomna, hér fáið þið smá lista yfir vörurnar sem ég notaði:
Húð:
BB krem frá Elizabeth Arden, Ageless Elixir Timeless Foundation 2 in 1 + serum farði frá Max Factor, True Match hyljari, Contour púður frá Shiseido og kremkinnalitur frá Max Factor
Augu:
Color Tattoo kremaugnskuggi í Permanent Taupe frá Maybelline, Pressed Pigments augnskuggi frá MAC í litnum Deeply Dashing, vatnsheldur svartur eyeliner frá Lancome og Illegal Definition maskari frá Maybelline.
Varir:
Ljósari endinn af Flipstick Colour Effect tvöföldum varalit frá Max Factor í litnum Folky Pink.
Dressið sjálf sjáið þið hér – reyndar ekkert sérstakar myndir þar sem þær voru teknar í miklum flýti því við vorum orðin alltof sein eins og vanalega ;)
Kjóll: Suit frá GK Reykjavík
Sokkabuxur: Oroblu
Jakki: H&M sést ekki nógu vel
Kápa: H&M
Skór: Scorett
Ekki séns að ég væri að fara að fara í háum hælum útí slabbið – það er nauðsynlegt að eiga eina fína svarta flatbotna kuldaskó í fataskápnum, alla vega hér á Íslandi :)
EH
Skrifa Innlegg