Nú fer að líða að prófatíðinni minni og þá fannst mér tilvalið að skrifa eina færslu um fatnað með þægindin í fyrrirúmi en á sama tíma frekar smart, en það eru tracksuits, eða íþróttagallar á okkar ástkæru tungu. Ég veit að þeir hafa verið “In” í einhvern tíma enda ekki við öðru að búast þar sem tískurisar á borð Chloe, Gucci og Bottega Veneta hafa sýnt sínar útgáfur af íþróttagöllum á sínum sýningum.
Mér finnst skipta miklu máli að líða vel þegar ég læri, og það vill svo til að mér líður vel í þæginlegum en samt flottum fatnaði – eflaust einhverjir sem tengja. Og fínir tracksuits kæmu sér afar vel fyrir mig, svo ég læt nokkur tracksuits inspo fylgja með á þessum grámyglaða en annars fína þriðjudagskvöldi..
xxx
Karin Sveins í mega nice tracksuits frá Stussy
Vetements x Champion
flott og þæginlegt, fullkomið fyrir djammið
Freja Wewer frekar svöl eins og alltaf
–
En nóg af íþróttagallapælingum í bili – er farin að spila með vinkonuhópnum mínum
Þangað til næst!
x Melkorka Ýrr
Instagram: @melkorkayrr
Skrifa Innlegg