Með fiðrildi í maganum og smá hnút er gaman að segja ykkur frá því að fyrr í vikunni skrifaði ég undir samning við 365 miðla um gerð á nýjum sjónvarpsþætti =)
Þátturinn mun fjalla um hönnun, tísku og lífstíl ásamt mörgu öðru. Mun ég taka viðtöl við flotta Íslendinga í skapandi atvinnugreinum, vera með margar skemmtilegar DIY sýnikennslur þar sem ýmsir hönnuðir munu koma þar að og svo margt fleira.
Þátturinn er enn ekki kominn með nafn, erfitt að finna gott nafn á svona þátt svo endilega ef þið lumið á góðum hugmyndum, deilið með mér =)
Svo auðvitað mun ég líta svona út á skjánum ;) ;) ……
Vísir.is fjallaði tók stutt viðtal við mig og birti það á vefsíðunni í dag =)
Svo speeeennnnaaannnndddiiiii…..kv ein æst.
Skrifa Innlegg