Það vill svo ekki skemmtilega til að maðurinn minn á afmæli í desember svo ég þarf að hafa nægilegt ímyndunarafl til að finna tvær gjafir handa honum með stuttu millibili.
Ég hef haft augastað á úrunum frá May28th í langan tíma og keypti eitt stykki handa manninum í afmælisgjöf. Það frábæra er að þá eru á hlægilega góðu verði og ótrúlega falleg, sem er ekki slæm blanda.
Það allra allra skemmtilegasta við úrin er sú að þú getur “hannað” þitt eigið úr á heimsíðu merkisins may28th.me en þar er hægt að velja litinn á ólinni, myndina á úrinu sjálfu og fleira.
Úrin fást í Hrím á Laugarveginum fyrir þá sem vilja kaupa þau strax en ekki panta á netinu.
Snilldar jólagjöf fyrir kærastann eða kærustuna!
Skrifa Innlegg