Blómakransar í hárið eru eitt það rómantískasta sem ég veit um. Ég tala nú ekki um hvað mér þykir það fallegt.
Ég ef oft reynt að troða blómum í hárið á mér en ríf þau úr um leið….finnst ég eitthvað kjánaleg. Ég held það sé einfaldlega vegna þess að ég er ekki nægilega mikill hippi í mér og í klæðaburði. Ég er fyrir klassísk, kvenleg og bein snið sem að passa ekki í blómakransakonseptið.
Ef ég verð einhverntíman hippi, þá verður blómakrans það fyrsta sem ég mun planta í hárið á mér ;)
Skrifa Innlegg