í gær fórum við í fyrsta skiptið með Ólíver í Húsdýragarðinn. Þóranna yndislega vinkona mín, er í heimsókn að norðan með fjölskyldunni sinni og fannst okkur tilvalið að breyta til og kíkja með krakkana ( ó hvað maður er orðinn fullorðinn).
Það var ekki gott veður þegar við komum svo stoppið var stutt (hvað er samt málið með það??????). En við nutum þess að sitja á Café Flóru. Ætla að fara þangað oftar í sumar, svo yndislegt.










Skrifa Innlegg