fbpx

Stemningin í gær

Í gær fórum við Trendskvísur allar saman á RFF. Hittumst kl 10 á Te&Kaffi á Aðalstræti og skelltum í okkur smá koffíni til að koma okkur af stað. Dagurinn var mjög skemmtilegur, áhrifaríkur en við vorum orðnar ansi þreyttar undir lokin (um 6 leytið).

Ég ætla ekkert að vera með neina gagnrýni á sýningarnar né sýna í myndum hvað mér fannst standa uppúr, enda verða allir fréttamiðlar í dag og á morgun stútfullar af þeim. Ætla bara að láta fylgja með helling af skemmtilegum myndum af stemningu gærdagsins sem var frábær!

Gaman að vera loksins á RFF sem gestur en ekki “vinnukona” :) Maður upplifir RFF á allt allt annan hátt!

 

í dag

Skrifa Innlegg