fbpx

Sigurvegarar trendhárs

Eftir miklar vangaveltur og instagram skoðun er komin niðurstaða í Trendhár leikinn okkar…

duddururumm……

Í fyrsta sæti er Áslaug Arna fyrir að vera með fallegasta hár á jörðinni, fyrir stórkostlegar krullur og líka fyrir að vera fallegur persónuleiki :)

Í öðru sæti er Gula rósin fyrir flotta uppgreiðslu, en ég veit ekki hvort ég kann að gera fimmfalda fasta fléttu með snúð…..úff…vel gert! :)

Í því þriðja er Una Unnars fyrir einstaklega fallegar og mjúkar krullu! Ekkert smá heit pía! :)

Í fjórða sæti er Beggý Heiða með fasta fiskifléttu (að ég haldi) og flotta útfærslu á henni…..ótrúlega falleg greiðsla!

 

Verðlaunin fyrir fyrsta sæti eru: Sebastian Trillance sjampó og næring, Microweb Fiber frá Sebastian, SP-hárolía, pinnagreiða, hárbursti og bókin HÁRIÐ!!!

Verðlaun fyrir 2-4 sæti er: SP-hárolía!!

Vinningshafar geta nálgast verðlaunin í Halldóri Jónssyni heildsölunni í Skútuvogi á morgun :)

 

Takk kærlega fyrir frábæra þáttöku !!!

xxx

Theodóra Mjöll

 

Trendhár síðasti dagur!

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

    7. December 2012

    Kærar þakkir elsku elsku besta Theodóra!! xxx víjj hvað ég er glöð
    Þú verður að kenna mér að nota þetta dót allt :)