Ég verslaði mér mjög fínt um daginn þó ég segi sjálf frá, en í þeim kaupum er að finna mega nice smekkbuxur í hvítum lit en með þeim keypti ég mér brúna hliðartösku, sem ég hef lengi ætlað að kaupa mér. Bæði smekkbuxurnar og taskan eru frá, eins og titilinn á færslunni gefur til kynna, Carhartt wip.
Ég pantaði þetta frá Carhartt búð sem er staðsett í Köben, nema hvað að netverslunin var öll á dönsku og ég hélt svo sannarlega að ég gæti pantað án einhversskonar erfileika – enda búin að læra tungumálið síðan í grunnskóla, þrátt fyrir það tókst mér einhvernveginn að haka við “pick up in store”, sem er svo týpiskt ég haha. Sem betur fer reddaðist þetta og það styttist óðum í að ég fái þetta í hendurnar.
Hérna er hún Freja Wewer í smekkbuxunum fínu! En þær fást m.a hér, ég tók mínar í xs!
Og svo er það taskan sem ég keypti mér. Mega fín og rúmgóð! En hún fæst í Húrra Reykjavík síðast þegar ég vissi. En mér sýnist hún vera uppseld á öllum þeim online síðum sem ég veit að selji Carhartt vörur.
–
Ég tók þá ákvörðun snemma á árinu að chilla aðeins í kaupum á svörtum fötum og sömuleiðis fylgihlutum og fjárfesta frekar í lituðum og björtum flíkum, sjálfri finnst mér það bara ágætis markmið enda er það oft þannig að fötin endurspegla skapið mitt!
Þangað til næst..
XX
Melkorka
Skrifa Innlegg