Ég verð að byrja á því að segja ykkur að alla mína ævi hefur mig dreymt um að vinna hjá stórfyrirtæki BARA til þess að geta farið á flotta árshátíð! Haha….að vinna á hárgreiðslustofu býður ekki upp á stórar árshátíðir né verandi í Iðnskólum landsins, og svo fór ég bara aldrei á árshátið Lhí, man ekki af hverju….
Þessi árshátíð kom alveg óvænt, en ég vissi ekki að ég væri að fara fyrr en í hádeginu sama dag og ekki búin að kaupa mér kjól, panta förðun eða hárgreiðslu…hvað þá fá pössun. En það skipti engu máli því skemmtilegustu hlutirnir sem gerast í lífinu eru þeir óvæntu!
Árshátíðin stóðst svo sannarlega allar mínar væntingar! Fórum í svakalega flott og skemmtilegt fyrirpartý í boði Rikku og Skúla kærasta hennar og færðum okkur svo niður á Nordica þar sem við fengum svakalega fínan mat og gott grín með góðu fólki.
Nú hef ég ákveðið að vinna eins lengi og ég get fyrir 365 til að komast á hverju ári á svona fína árshátíð =)
Skrifa Innlegg