fbpx

Falleg og minimalísk fatabúð í Soho

Fatahönnuðurinn og creative director Balenciaga, Alexander Wang  opnaði glæsilega verslun  í Soho, New York síðastliðið haust. Velgengni hans er mikil og hann talinn einn af áhrifaríkustu fatahönnuðum samtímans. Hugmyndin að nýju aðalverslun hans er enn ein staðfestingin á hæfileikum hans sem virðast teygja anga sína mun lengra en bara í fatahönnunargeiranum.

Alexander Wang var einungis tuttugu og sjö ára þegar hann opnaði sína fyrstu verslun í febrúar 2011 í Soho, New York. Wang var með puttana í öllu hönnunarferlinu en ásamt vini sínum, innanhúshönnuðinum Ryan Korban, hönnuðu þeir innanstokksmunina. Arkitektar frá Kramer Design komu svo hugmyndum og hönnun þeirra í þá mynd sem hún er núna. Eins og við var að búast er hönnunin hrein fegurð. Minimalisminn er allsráðandi með ríkjandi svart-hvítri (lita)pallettu. Hönnunin búðarinnar endurspeglar fagurfræðina í fatamerkinu hans alla leið.

Rýmið breytist með hverri fatalínu sem hann gefur út og mun þá endurspegla hugmyndafræði hverrar línu fyrir sig. Þá er notast við sömu svörtu grindina en hún notuð sem grunnur að innsetningunni. Hér erum við að tala um sannan listamann!

yellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_02ayellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_11ayellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_11b1

 

yellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_00yellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_03 yellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_03a yellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_05a yellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_06a yellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_08a yellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_08b yellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_09ayellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_13a yellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_13d yellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_14b yellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_14c yellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_15a yellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_15e yellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york_16a yellowtrace-alexander-wang-flagship-store-soho-new-york2_16b

Silfurrefurinn Calvin Klein í Hörpunni á morgun!

Skrifa Innlegg