Ég er í draumaskapi, finnst fátt skemmtilegra en að láta mig dreyma um fallegt innbú, risastórt einbýlishús með garði og gróðurhúsi, risastórt fataherbergi og jú, föt sem passa inn í það herbergi. En aðaldraumurinn beinist þó að lofthæð. Mig langar í opna íbúð/hús/höll með himinhárri lofthæð og risastórum gluggum sem hleypa allri birtu inn.
Einn daginn……..einn daginn……
Það er eitthvað svo sjarmerandi við skreytta glugga sem þessa.
Þvílík útsjónarsemi!
Það væri gaman að vera með eigin þvottaaðstöðu og vera svona skipulagður líka.
Þetta er bara kúl sko….
Draumahurð á heimilið. En ég veit samt ekki með staðsetninguna….þyrfti maður ekki gluggatjöld?
Einfaldlega guðdómlegt. Litasamsetningin fullkomin.
PANT!
Fallegir gluggar gera svipinn á eldhúsið.
Ég geri mér ekki grein fyrir hvort þetta sé eldhús eða ekki, en fallegt er rýmið.
Skrifa Innlegg