fbpx

Sumarneglur

Eftir að ég fékk mér þennnan naglalakkaeyði HÉR – þá hef ég verið miklu duglegri við að skipta um liti á nöglunum mínum. Hér eru myndir af nöglunum mínum síðustu daga.

Ég er dáldið mikið skotin í þessu – eldrautt með gylltum glimmerögnum – mega fansí!Loksins eru Bond lökkin mætt! Ég er búin að eignast tvö – þetta hvíta eins og ég var löngu búin að ákveða að fá mér. Næst valdi ég það bleika – sem heitir Pussy Galore. Mér finnst það koma mjög vel út:)

EH

Spurning & Svar - RT Burstar

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Elísabet Gunnars

    24. April 2013

    Snilli!

  2. Heba

    24. April 2013

    Geðveikt! Ertu með einhver góð tips til að halda nöglunum sínum svona fallegum? Neglurnar mínar eiga svo auðvelt með að klofna þegar þær eru komnar í ákveðna lengd, sem er ekki löng lengd!

    • Veistu ég verð að koma með ömurlegt svar en eftir að ég varð ólétt þá eru neglurnar mínar bara svona fínar, þær styrkust bara og urðu fallegar og eru það enn. Ég nýt þess á meðan ég get;)

  3. Rut R.

    25. April 2013

    æði!
    hvaða naglalakkatýpa finnst þér haldast best og lengst á?

    kv. Rut

    • OPI lökkin með sandáferðinni haggast náttúrulega ekki – en af þessum venjulegu þá er ég sjúklega ánægð með Superstay lökkin frá Maybelline. Þau eiga að endast í 7 daga, ég tók þau af eftir 6 daga og þá voru þau bara nokkuð fullkomin enn.

  4. Ágústa Íris

    30. November 2013

    Veistu hvort að það sé enþá hægt að fá pussy galore naglalakkið einhversstaðar? :)

  5. Ágústa Íris

    30. November 2013

    Veistu hvort að það sé enþá hægt að fá pussy galore naglalakkið einhversstaðar? :)

    • Reykjavík Fashion Journal

      3. December 2013

      Hæ! ég hélt ekki en ég er búin að vera að líta í kringum mig í verslunum og rak augun í miniset frá OPI með lökkum úr Bond skvísu línunni sem inniheldur einmitt þennan lit. Kassinn var í Lyfju á Laugavegi og í honum eru 4 litir úr línunni m.a. þessi :)