fbpx

Spurt & Svarað: Myndavélin mín

Ég Mæli MeðLífið MittMyndböndMyndir

Ég er búin að fá ótrúlega mikið af fyrirspurnum um hvernig myndavél ég notist við fyrir síðuna. Nú er lögnu kominn tími til að leyfa frábæru vélinni að vera í aðalhlutverki og svara þeim sem eru forvitnir um vélina og eru jafnvel í innkaupahugleiðingum:)

annaðdresskynning2

Vélin sem ég er að nota núna er Canon EOS M. Þetta er ný vél frá Canon sem er lítil og nett en inniheldur alla bestu eiginleika Canon vélanna. Þetta er vél sem er mjög meðfærileg og hún fer með mér allt. Hún skilar virkilega góðum myndum hvort sem birtan er góð eða ekki.

En mér finnst eiginlega myndirnar segja allt sem segja þarf og ég hef verið að nota þessa myndavél síðustu mánuði og ég dýrka hana hreinlega. Ég var með Sony Nex 5 áður og mér fannst hún mjög góð – en Canon vélin fannst mér einhvern veginn einfaldara að læra á þó svo ég sé alltaf að læra eitthvað nýtt. Um daginn komst ég t.d. að því að hún er með alls konar filtera sem hægt að að nota til að taka myndir. Svo var ég reyndar mjög lengi að fatta að vélin væri með snertiskjá – það var voða framandi!

canonvél30 canonvél29 canonvél28 canonvél27 canonvél26 canonvél25 canonvél24 canonvél22 canonvél21 canonvél17 canonvél16 canonvél15 canonvél14 canonvél13 canonvél12 canonvél11 canonvél10 canonvél9 canonvél8 canonvél6 canonvél5 canonvél4 canonvél3 canonvél2 canonvélÞessi vél fylgdi mér á tískuvikuna í Kaupmannahöfn, hún kom með mér á RFF, hefur verið fjölskyldumyndavélin og uppá síðkastið hef ég verið að prófa að taka sýnikennslumyndböndin mín upp á hana…

Svona í lokin þá langar mig að taka það fram að hvar sem ég kem með myndavélina – ef ég er t.d. í kringum atvinnuljósmyndara þá verða þeir alltaf að fá að kíkja aðeins á vélina. Þeim finnst hún rosalega spennandi og segjast allir þurfa að skoða þessa vél betur – mér finnst það mjög góð meðmæli.

Ef ykkur vantar myndavél þá mæli ég með þessari.

EH

Annað Dress: Nýr frá AndreA Boutique

Skrifa Innlegg

9 Skilaboð

  1. Lilja Kristjáns

    9. April 2014

    Þurftiru að kaupa flassið sér eða fylgdi það?

    • Ég er búin að vera með þessa í láni frá Nýherja svo ég er ekki með það á hreinu en skv. heimasíðu hjá einni af verslununum sem selur hana þá fylgir flassið með í kassanum :) Það smellist ofan á og gengur fyrir AAA batteríum;)

      • Ragga

        11. April 2014

        Er ekkert bögg að flassið sé svona laus viðhlutur?! Þá meina ég a svona vél sem maður druslast með út um allan bæ…..
        Ég er svo torn nefnilega hvort ég eigi að taka þessa vél eða Powershot sem er með innbyggt flass. Ég er eitthvað svo að mikla fyrir mér þetta að þurfa að setja flassið sérstaklega á í hvert skipti

        • Sko ég hef bara alltaf haft flassið á vélinni – það er pikkfast:) Ég dröslast með þessa útum allt hún er fislétt og þæginleg!

          • Ragga

            13. April 2014

            Lokaspurning ;) þarftu oft að skipta um batterí í þessu flassi?

  2. Guðrún Vald.

    11. April 2014

    Spannandi vél. Ég á reyndar rosalega góða myndavél en ég er tækjasjúk svo ég þarf alltaf að vera að skoða meira. ;)
    En ekki er séns að fá að vita meira um förðunina sem þú ert með á einni myndinni ca. í miðjunni, með bláan augnskugga? Ótrúlega falleg og sparileg. :)