fbpx

Náðu lúkkinu: Punk Couture í MAC

AugnskuggarAuguFashionLúkkMACmakeupMakeup ArtistMitt MakeupNýjungar í SnyrtivöruheiminumNýtt í snyrtibuddunni minni

Jebb… þá er komið að því að sýna ykkur pönk lúkkið sem ég gerði með vörum úr glænýrri línu frá MAC. Línan nefnist Punk Couture svo þaðan kom innblásturinn minn fyrir þessum svip HÉR. Vörulínan mætir bara í verslanir MAC Kringlunni og það í fyrramálið en búðin opnar klukkan 10. Ef ykkur langar í svartan varalit þá er málið að mæta snemma. Ég verð að ná í einn það er bara þannig – mig grunar líka að fleiri séu eins og ég og séu með svartan varalit á óskalistanum.

Hér sjáið þið förðunarlúkkið sem ég gerði með vörum úr línunni. Ég notaði augnskuggapallettu með fjórum mismunandi augnskuggum og svo rauðan mattan varalit sem er líka úr línunni – flettið aðeins neðar til að sjá vörurnar og smá sýnikennslumyndband sem sýnir hvernig ég gerði augnförðunina.

Hér er lokaútkoman:

pönkmacpönkmac4 pönkmac5

Hér fyrir neðan sjáið þið vörurnar sem ég notaði. Ég byrja á því að grunna augnlokið með ljósasta litnum svo setti ég þétta eyelinerlínu með svörtum gel eyeliner og setti stóran spíss á línuna. Ég dreifði úr litnum í spíssinum inn með globuslínunni og aðeins inná augnlokið. Yfir eyelinerinn setti ég fjólubláa litinn og líka augnlokið en skildi þó eftir smá autt svæði þar sem ég setti silfraða augnskuggann en þið sjáið það mjög vel á myndinni fyrir neðan vörurnar þar sem ég er með lokuð augun. Loks dekkti ég skygginguna með svarta skugganum. Svo lagaði ég eyelinerinn til og setti hann meðfram efri og neðri augnhárunum. Þegar maður er með svona dökka augnförðun er nauðsynlegt að vera með mikinn maskara svo ég setti þrjár umferðir. Ef það er ekki nógu mikið af maskara þá geta augnhárin fallið inní augnförðunina.

Það er bara ein augnskuggapalletta í línunni og varaliturinn heitir Studded Kiss og er alveg mattur.

pönkmac6pönkmac9 pönkmac19

Hér er svo örstutt sýnikennsluvideo þar sem þið sjáið hvernig ég geri augnförðunina – eða svona næstum því alla ;)

Ég hef aldrei málað mig svona mikið fyrir myndatöku fyrir síðuna – hvernig líst ykkur á?

EH

Gefum gömlum flíkum nýtt líf og nýjan tilgang

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Lilja G

    16. January 2014

    Geðveikt, more is more!

  2. Íris Ósk

    16. January 2014

    Mjög flott!