fbpx

Óvæntur glaðningur fyrir lesanda!

HúðLífið Mitt

Í dag á Trendnet 2 ára afmæli og á síðunni verður að sjálfsögðu mikið fjör og í dag og næstu daga munum við gleðja lesendur með óvæntum glaðningum. Ég fæ að vera svo heppin að gefa fyrsta glaðninginn. Gjöfin mín er frá merki sem er alveg dásamlegt í alla staði, það er sannkallað dekur fyrir húðina og maður heillast frá fyrstu prufu. Skyn Iceland er snyrtivörumerki sem ég hef aðeins skrifað um áður og þið finnið eldri færslur um vörurnar hér fyrir neðan.

„Skyn Iceland vörur eru ekki prófaðar á dýrum og eru þær 100% vegan. Vörurnar okkar eru einfaldar í notkun. Þær vekja skynfærin og veita samstundis vellíðunar tilfinningu og koma jafnvægi á húðina. Skyn Iceland vörurnar innihalda íslenskt vatn, kísil, jurtir og ber og eru einu vörurnar sem einblína á áhrif streitu á húðina.“

Saving Face kit frá Skyn Iceland inniheldur nokkrar dásamlegar snyrtivörur frá þessu einstaka merki…

Saving_Face_Kit

Í gjafapakkanum sem er um 10.000kr virði er meðal annars að finna eina af mínum uppáhalds vörum frá merkinu Iceland Relief Eye pen sem er dásamlegur að nota í kringum augun, húðin verður svo mjúk og kremið hjálpar manni að losna við leiðinda þrota sem getur myndast um augnsvæðið eftir svefn – sérstaklega þegar maður fær ekki nægan svefn. Einnig er Glacial Face Wash andlitshreinsir, Hydro Cool Firming Eye Gels kæliaugnpúðarnir (2 pör) sem eru betri en köld vatnsgusa á morgnanna fyrir húðina mína, the ANTIDOTE Cooling Daily Lotion eitt besta krem sem ég hef á ævinni prófað og Nordic Skin Peel (60 púðar) – varan sem er næst á mínum prufulista frá merkinu.

Skyn Iceland vörurnar fást á Nola.is og það er algjörlega þess virði að kíkja á þær og prófa.

Á Instagram hafa samtals 8769 myndir verið merktar með #trendnet. Ég ákvað í gærkvöldi að minn vinningur færi til eiganda Instagram myndar sem væri merkt #trendnet og passaði svona við verðlaunin – ég fór nánast í gegnum allar myndirnar því ég vildi velja eina hárrétta. Ég fann reyndar myndina mjög snemma allan tíman var ég að leita að mynd sem myndi mögulega henta betur en þessi greip mig strax…

photfo

 

Íslensk náttúra, íslenskt vatn og falleg og ljómandi stúlka – mér fannst eigandi þessarar myndar eiga skilið að fá dásamlegar vörur til að dekra við húðina. Þetta er mynd sem var líklega send inn til að taka þátt í 66°Norður leiknum okkar en stundum er bara möguleiki að fá einhvern annan glaðning en þann sem maður vildi upphaflega fá.

Það borgar sig að merkja ykkar skemmtilegu augnablik á Instagram með #trendnet – þið vitið aldrei hvort þið gætuð mögulega átt von á skemmtilegum glaðningi. @karitassigurdar sendu okkur endilega línu á trendnet(hjá)trendnet.is og fáðu upplýsingar um hvert þú getur nálgast vinninginn þinn. Ef þið þekkið Karítas megið þið líka endilega láta hana vita af glaðningnum!

Mig langar að lokum að þakka ykkur kærlega fyrir komuna – að koma hingað inn reglulega jafnvel oft á dag og lesa það sem ég hef að segja. Ég er ótrúlega þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í Trendnet frá upphafi og hlakka til að halda inní þriðja árið okkar með fullum krafti, spennandi breytingum (meira um þær seinna í vetur) og frábæru fólki. Núna nýlega bættust líka tvær ofurskvísur og systur í hópinn þær Irena og Karin. Þær koma inn með ferskan blæ á síðuna og ég hlakka til að fylgjst með þeim og ég mæli með því að þið leggið leið ykkar líka á þeirra síðu.

Takk fyrir lesturinn – takk fyrir árin 2 – takk fyrir allt!

knúsogkram***

EH

Frá degi til kvölds með einum eyeliner

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1