Ef það er eitthvað sem ég get eytt miklum tíma í að skoða og spá í eru það húðflúr. Nú þegar skarta ég 4 stykkjum og langar mig í mikið fleiri. Finnst fátt fallegra en skreyttir líkamar, það er bara eitthvað svo heillandi.
Ég er með frekar lítil og mínimalisk flúr hér og þar og langar mig til að halda áfram á þeirri braut, en læt myndir af fallegum flúrum fylgja með sem vonandi veita fleirum en mér svolítið inspo!
Ég hugsa að næsta flúr fari á upphandlegginn,
er mest skotin í einhverskonar plöntu, kannski kaktus?
Ef til þess kemur mun ég leyfa ykkur að fylgjast með!
x Melkorka
Skrifa Innlegg